Flokkar

Persneskar valhnetukökur

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.

starstarstarstar

Innihald

  • 200g fínt malaðar valhnetur (má líka nota pistasíur eða möndlur)
  • 50g heilir valhnetukjarnar til skreytingar
  • 4 eggjarauður
  • 150g sykur
  • 1msk kardimommuduft
  • 1tsk matarsódi
  • 1msk vatn

Aðferð

  1. Blandið saman möluðu valhnetunum, 3 eggjarauðum, sykri, kardimommum og matarsóda.
  2. Búið til kúlur á stærð við karlmannseistu (*hóst*) og raðið á bökunarplötu með smjörpappír. Hafið a.m.k. 5 sentimetra á milli kúlanna, þær þenjast vel út við bakstur.
  3. Blandið saman fjórðu eggjarauðunni og vatninu með gaffli. Þrýstið valhnetukjarna ofan í hverja köku og penslið svo með eggjarauðublöndunni.
  4. Bakið í um 20 mínútur við 180°C eða þar til kökurnar eru fallega gullnar.

Umsagnir


Hugi Þórðarson starstarstarstar
2006-11-26T19:30:23
Eldaði þessar um daginn. Hrikalega góðar og fljótlegt að útbúa þær.