Flokkar

Ólífubrauð

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.

starstarstarstarstar

Dugir í tvo stóra brauðhleifa

Innihald

  • 1/2 bréf þurrger
  • 6dl volgt vatn
  • 1/2dl ólífuolía
  • 50g sykur
  • 2tsk salt
  • 1kg hveiti
  • 150g rifinn ostur
  • 110g fylltar ólífur, skornar í sneiðar

Aðferð

  1. Blandaðu gerinu, vatninu, olíunni, sykrinum og saltinu saman.
  2. Blandaðu hveitinu saman við og hnoðaðu í deig. Setjið deigið í olíuborna skál og látið lyfta sér í um 40 mínútur.
  3. Hnoðið deigið, skiptið því í tvennt og fletjið út hvorn helming í ferning (ca. 40x40cm, annars stærð bara e. smekk). Setjið ost og ólífur jafn ofan á, rúllið upp og myndið skeifur úr rúllunum.
  4. Bakið á bökunarpappír í ca. 30 mín, eða þar til brauðið er fallega gullinbrúnt. Penslið með vatni af og til á meðan á bakstri stendur til að gera fallega skorpu, og látið svo kólna undir rökum klút.

Umsagnir


Atli Páll Hafsteinsson starstarstarstarstar
2009-03-15T12:25:24
Fastur liður í öllum veislum sem mamma stendur fyrir, hrikalega gott mótvægi við sætu kökunum.