Flokkar

Lasagna með engifer, hvítlauk og chili

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 18. september 2008.

starstarstarstar

Einfalt, fljótlegt og bragðmikið lasagna.

Innihald

  • 400g nautahakk
  • 2 dósir maukaðir niðursoðnir tómatar
  • 1 dós tómatkraftur
  • 1 stór laukur, saxaður
  • 1 bréf gott salami álegg (ca. 150g), smátt saxað
  • 1 rauð paprika, smátt söxuð
  • 4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
  • 1 chili aldin, smátt saxað
  • 3msk saxaður engifer
  • Ólífuolía
  • Svartur pipar
  • Salt
  • Lasagna-plötur
  • 200g rifinn gouda-ostur
  • 50g rifinn parmesan-ostur (má sleppa, en er muuun betra með honum)
  • 200g kotasæla

Aðferð

  1. Hitið í olíunni lauk, salami, papriku, hvítlauk, chili og engifer þar til laukurinn er orðinn glær.
  2. Takið laukblönduna til hliðar á pönnunni, brúnið hakkið og blandið því svo saman við.
  3. Bætið tómötunum og tómatkraftinum útí og blandið vel.
  4. Látið blönduna krauma á pönnunni við lágan hita í a.m.k. 30 mínútur, smakkið reglulega til með salti og pipar
  5. Takið fram eldfast mót. Setjið til skiptis kjötsósu og lasagnaplötur (byrjið og endið á kjötsósu).
  6. Þekið með Gouda osti, og svo parmesan-osti.
  7. Bakið í 40 mínútur við 180°C (eða þar til osturinn er fallega brúnn).

Umsagnir


Ósk Gunnlaugsdóttir starstarstarstar
2008-09-18T17:45:06
Mjög gott lasagna, mæli með því að vera ekki með heigulshátt við Chiliið. *om nom nom nom*