Flokkar

Hvítlauksbrauð

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 19. febrúar 2009.

Innihald

  • 1 pakki þurrger
  • 4dl volgt vatn
  • 50ml ólífuolía
  • 50g sykur
  • 550gr hveiti
  • 2tsk salt
  • 2tsk svartur pipar
  • 2tsk basilíka
  • 2tsk hvítlauksduft
  • 50g rifinn parmesanostur
  • 5 hvítlauksrif, pressuð
  • 50g fínt saxaður vorlaukur

Aðferð

  1. Blandið saman vatninu, sykrinum, olíunni og gerinu og látið gerið starta sér.
  2. Blandið bragðefnunum og kryddinu saman við vökvann
  3. Hnoðið í deig með hveitinu

Umsagnir

Engar umsagnir