Flokkar

Sólþurrkaðir tómatar

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 11. febrúar 2012.

Þetta eru eiginlega frekar "ofnþurrkaðir tómatar" en sólþurrkaðir.

Innihald

  • Tómatar, eins margir og þú vilt gera
  • Hvítlaukur, fínt saxaður
  • Fersk basilíka, fínt söxuð
  • Ólífuolía
  • Sjávarsalt í flögum
  • Svartur pipar, malaður

Aðferð

  1. Skerið tómatana í helminga og hreinsið úr þeim aldinkjötið.
  2. Setjið smjörpappír á ofnplötu og raðið tómötunum á plötuna, þannig að sárið snúi upp.
  3. Blandið hvítlauk og basilíku saman við smá ólífuolíu. Penslið tómatana með blöndunni
  4. Stráið vel af salti og pipar yfir tómatana.
  5. Setjið í ofn og þurrkið við 100 gráður í 4-8 tíma (eftir stærð tómatanna), þar til húðin á þeim er orðin leðurkennd.

Kjörið er að nota innvolsið sem varð afgangs í taco- eða pizzasósu.



Umsagnir

Engar umsagnir