Höfuðóvinur alþýðunnar

8. október 2008

Ég skrapp í badminton í fyrrakvöld - u.þ.b. tveimur tímum eftir að forsætisráðherrann okkar kvaddi þjóðina skjálfandi og tárvotur með orðunum "Guð blessi Ísland".

Eins og venjulega geymdi ég veskið mitt og lyklana í hólfi í afgreiðslunni meðan ég sveif á vængjum gleðinnar um badmintonvöllinn. En - ég var eitthvað utan við mig og var búinn að gleyma númeri geymsluhólfsins þegar ég kom aftur af vellinum, svo ég bað afgreiðslumanninn kurteislega að gramsa í skápunum og finna lyklana mína. "Ekkert mál" sagði hann. "Á hvernig bíl ertu"?

Ég svitnaði aðeins, leit varlega í kringum mig og hvíslaði lágt yfir borðið: "Range Rover".

Það sló þögn á viðstadda og andrúmsloftið varð þrúgandi. Eldri hjón horfðu á mig með fyrirlitningarsvip og hvísluðust á. Ég sá varirnar á konunni mynda orðið "gjaldeyrisþjófur" uppvið eyrað á manninum, en hann hristi höfuðið hægt. Lítið barn benti á mig og fór að gráta, móðir þess tók utan um það og horfði reiðilega á mig. Afgreiðslumaðurinn svaraði "Jæja, já..." og fór svo að leita að lyklunum mínum.

Jæja jæja, smá ýkjur kannski - en það varð samt til skemmtilega súrrealísk stemning. Á einni sekúndu fann ég hvernig ég varð höfuðóvinur alþýðunnar útaf greyið gamla Blakki mínum. Og mig dauðlangar að gera þetta aftur. Ætla samt að vera betur undirbúinn næst, og þegar allir eru að horfa á mig ætla ég að draga danska kjúklingabringu upp úr vasanum og þurrka svitann af enninu með henni.


Tjáskipti

Esther

Þú áttir náttúrlega að segjast vera á gamalli Lötu sem þú hefðir fengið í arf, en lyklakippan væri merkt Range Rover.

Hugi

Hmmmm, þú segir nokkuð, man það næst. Ætla líka að taka Landrover-merkið af og skipta því út fyrir Lödumerki. Þá er ég öruggur, svona a.m.k. þar til það versta er afstaðið...

Bjarni Þór

Hugi. Þessi kreppa. Þetta er allt saman þér að kenna.

Sveinbjörn

Hugi, ég hló mig máttlausan yfir þessari færslu.

skuggadísin

..þetta var skemmtilegt ;)

Ósk

Oft er þörf en nú er nauðsyn. Hvar er bloggið!!!!1!?

Arnaldur

Afhverju danska kjúklingabringan? Ég skil þetta ekki. Eru danskar kjúklingabringur svona rakadrægar? Annars mjög gott. Til hamingju Hugi. Þú ert skondinn gaur.

Hugi

Arnaldur, dönsk vegna þess að það kosta gjaldeyri, kjúklingabringa vegna þess að þær eru svo rakadrægar. Og þakka þér fyrir, ég legg mikið upp úr skondleika. Annars eru árásirnar á Blakk farnar að ágerast... {macro:km:picture id="1000525"}

Arnaldur

Ertu ekki að fokking djóka! Djövulsins villimenn. "I mean, you just DO NOT FUCK with another man's automobile..."

Sveinbjörn

"I FUCK YOUR CAR! I FUCK IT!!" -- Automobile Owner in "The Big Lebowski"

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin