Hafmeyjar

24. ágúst 2009

Ég sat áðan og forritaði eins og vestanvindurinn, þegar skyndilega rann upp fyrir mér að það er ekki undarlegt að hafmeyjar séu löngu ofveiddar og útdauðar. Hafið þið einhverntíman spáð í hvað þetta er mikil snilldarskepna? Fiskur fyrir neðan mitti, hvítt kjöt fyrir ofan mitti ... forréttur og aðalréttur í einu dýri og meinhollur matur að auki.

Og hér leynast tækifæri, því líftæknifyrirtæki hafa fram að þessu engan veginn staðið sig í þróun nýrra og spennandi matblendinga. Væri ég í sporum Kára Stefánssonar mundi ég núna stökkva til, grípa tækifærið til nýsköpunar í kreppunni og beina öllum mannafla Íslenskrar erfðagreiningar í að splæsa t.d. saman kjúklingi og agúrku - Kjúklingagúrkan yrði samstundis algjör smellur.

Og ég er barmafullur af fleiri góðum hugmyndum svo áhugasamir sælkeraþenkjandi erfðafræðingar mega endilega hafa samband. Ég held að Þorskbananinn og Rollutréð eigi einfaldlega skilið að verða að veruleika.


Tjáskipti

Bergur

Þessi færsla tók í lok fyrstu málsgreinar talsvert aðra stefnu en ég átti von á.

Hugi

Hvað segirðu - mér fannst þetta allt mjög fyrirsjánlegt... En já, ég gleymdi að nefna kúelsínuna - 500 kílóa appelsína með júgur sem framleiða ferskan appelsínusafa.

Hugi

Svo er auðvitað kakókúin, kú með ígræddum kakóbaunagenum, ómissandi á öll kúabú sem vilja framleiða alvöru kókómjólk.

Sveinbjörn

Þetta minnir mig á Futurama þáttinn þar sem Fry verður ástfanginn og giftist hafmeyju. Síðan þegar það kemur að brúðkaupsnóttinni er hann eitthvað ringlaður: "Why couldn't she be the other way around, fish above the waist and human female below?"

Hugi

Hah, já - góður þáttur. Tengt efni - http://www.youtube.com/watch?v=C4zbBEifkrU Ég kýs samt að mitt kvenfólk sé að öllu leyti mannlegt. Eða jæja, að mestu leyti mannlegt. Ekki með tálkn, þar dreg ég mörkin.

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin