Pöddusulta með rifsberjakeim

13. september 2009

Á hverju hausti hef ég búið til rifsberjahlaupið Ye Olde Man Jelly. Ástæðan fyrir því að ég hef alltaf búið til hlaup en ekki sultu er að það er fljótlegt. Það liggur við að maður geti bara rifið upp rifsberjarunna með rótum, soðið hann með sykri og út kemur hlaup. Fullkomið fyrir latan upptekinn mann eins og mig.

En nú eru helstu lánalínur til landsins lokaðar svo ég ákvað að gera sultu í ár. Maður getur ekki leyft sér að henda góðu hrati í þessu árferði.

Atli samvinnuður minn er góðhjartaður maður og smyglaði í vikunni til mín stórum poka af rifsberjum úr Kópavoginum sem ég byrjaði að hreinsa í morgun. Ég hafði ekki notað ber úr Kópavogi áður og það sem kom mér helst á óvart við þau var að sum berin fengu skyndilega átta fætur og gerðu örvæntingarfullar flóttatilraunir þegar ég reyndi að plokka þau af. Við nánari skoðun reyndist leynast talsverður fjöldi gesta í hrúgunni - aðallega litlar berjaætur með rifsber langt út á kinnar og köngulær með litlar berjaætur langt út á kinnar. Hópurinn horfði allur á mig með svip sem lýsti miklum vonbrigðum yfir að partýið væri búið.

Við Óskin vorum tæpa 2 tíma að hreinsa berin frá laufinu og pöddunum og þegar því var lokið vorum við með þrjú kíló af berjum, 300 grömm af stilkum (í hleypi) og hálft kíló af pöddum og köngulóm. Þetta sauð ég samviskusamlega saman við tvö kíló af sykri og út kom hin ljúffengasta rifsberjasulta, með léttum, hnetukenndum pöddukeim.

Nú vantar mig bara gott nafn á afurðina í ár.


Tjáskipti

Ósk

Ég er afskaplega glöð að hafa verið með í þessari sultugerð og hafa innihaldið á hreinu eftir að hafa lesið Man Jelly færsluna.

Atli Páll Hafsteinsson

Hlakka til dagsins sem þú verður með föstudagskaffið, gerir ráð fyrir að þar verði boðið upp á rifsberjasultu.

Hugi

Ósk - ertu viss? Þú varst ekki að fylgjast með mér hverja sekúndu... Engin hætta á öðru Atli - þetta er vel á fimmta kíló af sultu svo það ætti að duga í nokkra daga :).

Atli Páll Hafsteinsson

Það verður þá kanski ekkert annað en rifsberjasulta? Rifsberjasulta í hlaupi, rifsberjasultu paté, rifsberjasultu gratín, heilsoðin rifsberjasulta ...

Hugi

Heyrðu já - þetta verður þemakaffi. Klæðum okkur líka eins og rifsber.

Sveinbjörn

Jellus Menticus Volunta Magnificus. Menticus == Hugi Volunta == Ósk

Hugi

Sveinbjörn, þetta er selt. <p align="center">{macro:km:picture id="1000607"}</p>

Hugi

Og ég er að hugsa um að kalla mig framvegis aldrei annað en "Menticus". Maður hljómar gáfulegar á Latínu.

Ósk

Ó já, sultufínt :)

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin