Nú er ég hættur að predika af háa hestinum mínum, smellið á hnappinn "tjáskipti" við hverja grein til að tala illa um mig.
Jújú! Fyrstur til að kommenta! BTW, vissirðu að hlekkurinn fyrir komment teiknast hálf bjánalega í IE? Bara af því að ég veit hvað þú hefur gaman að því að laga þessa hluti :-D
Hehe, er verið að fikta? Takk fyrir síðast. Gaman að hitta þig hjá Önnu á laugardagskvöldið. Ísaxarxxxxxxxxxx þinn :-D
Daníel: Þú kannt bara ekki gott að meta, þetta á að vera töff :-). Annars er núna í vinnslu hjá sýslumanni nálgunarbann á þig og Explorerinn!
Hæ Harpa, takk sömuleiðis :-). Hefði viljað getað stoppað lengur en þá hefði ég alveg áreiðanlega orðið úti á sunnudagsmorguninn.
Þetta er eins og með flest börn, þau fæðast ljót og skána svo með aldrinum. Tek það þó fram að svona var ekki með mig. (þið megið botna þetta eins og þið viljið;))
Vildi svo líka bara benda á, að í Safari þá smellir maður á senda, og þá kemur þessi gluggi upp aftur. En þú ert nú samt voða sætur Hugi!
Stefán, þú fæddist fallegur, ert fallegur og þegar þú deyrð þá verður þér örugglega þrátt fyrir allt hleypt inn í himnaríki, bara upp á lúkkið :-). Og glugginn á að koma aftur upp.
Það er loxins að maður getur röflað á þessu tjásetri.Húrra!
Það var mikið!
það var mikið að maður fær að tjá sig um þig! Hefði viljað tjá mig strax í ostablogginu en þar sem enginn tjáskiptastaður var til staðar tjáði ég mig bara í dansi inni í stofu. Þú skuldar mér nýja ljósakrónu og geisladiskastand.
Yay! Nú getum við öll loksins sagt þér hvað okkur finnst þú vera siðspilltur alki!
Olla, mér þykir það leitt með ljósakrónuna og geisladiskastandinn, en ég sver að ég mun berjast við þig til dauða fyrir dómstólum vegna ábyrgðar á skaðanum ef þess gerist þörf! :-)
Sveinbjörn: I expect nothing less.
Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin