Dalatangi

19. september 2007

Ég kíkti austur til fjölskyldunnar á Norðfirði um daginn og við notuðum tækifærið og heimsóttum uppeldisstöðvar múttu á Dalatanga - í dramatískum veðuraðstæðum. Afskaplega fallegur staður.

PS: Sæta stelpan er systa.

PPS: Takk fyrir myndina, Ingunn Hildur!

PPPS: Þér að kenna birtingin, Inga Hanna!


Tjáskipti

inga hanna

kenna eða þakka?

Bullu-Kolla

PS: Sæti strákurinn á myndinni er Hugi PPS: Takk fyrir myndina ;o) PPPS: Það verður þér að kenna ef feita kartöflumúsin mistekst um helgina, þú gleymdir að gefa mér uppskrift af henni!!

Elín Björk

Mér finnst afar viðeigandi að það séu dramatískar veðuraðstæður á Dalatanga...

Ingunn Hildur

Mín er ánægjan, Hugi minn! Þið eruð nú bæði svo sæt og fín :-)

Logi litli

Fallegt fólk á ferð

baun

flott mynd!

Jóhanna

Það er allt gullfallegt á þessari mynd! Dalatangi og Mjóafjörður eru á topp 5 yfir flottustu staðina á landinu.

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin