Síðasta sumar fékk ég í San Francisco að fá að sjá brot úr næstu mynd Pixar. Mig fór strax að klæja i augun (eða hvað sem það er sem mann klæjar í þegar mann langar að sjá myndir). Altént - ég hef á tilfinningunni að þessi mynd verði algjör snilld. Ég meina... Sæt lítil sælkerarotta sem hefur gaman af að elda. Hann minnir mig á sjálfan mig.
You know, if you can, sort of, muscle your way past the gag reflex, all kinds of food possibilities open up
Hvenær kemur þessi mynd? Í sumar? hlakktil...
Oh, ég var búinn að sjá trailer og mig langar svo að sjá hana. Rottan er yndisleg.
mér finnst mest um vert að vita nú hvernig á að bera þetta fram
Haha, já þessi mynd kemur í sumar. Ég segi að það eigi að verða hópferð rottuaðdáenda og sælkera.
Við gætum jafnvel haft grill á undan. Hvar fær maður bestu rotturnar?
ha ha ha... alveg sammála þér, frá því að ég sá trailerinn klæjaði mig líka í eitthvað.