Hamfarir við Austurvöll

20. janúar 2009

Austurvöllur er nú lokaður vegna geislamengunar, en að minnsta kosti 100 manns létust og 300 særðust þegar Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG, sprakk úr reiði í pontu á Alþingi í dag.

Forsætisráðherra slapp einn þingmanna á lífi úr hamförunum sökum ótrúlegs viðbragðsflýtis, en það þakkar hann góðri þjálfun í að hlaupa undan fjölmiðlum. Hann er þó illa brenndur í andliti og á hann vantar flesta handleggi og fótleggi.

Aðspurður hvort ástæða væri til að boða til kosninga í vor - í ljósi þess að allir ráðherrar og þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks nema hann og Ingibjörg Sólrún, væru orðnir að ösku og ryki - svaraði Geir "Nei. Ég sé ekki ástæðu til þess. Það hefur ekkert breyst".


Tjáskipti

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin