Rólegt kvöld á Hagamel

30. september 2009

Það voru mikil rólegheit á Hagamel í gærkvöldi. Engir gestir og ekkert í sjónvarpinu, svo ég kveikti á tungl-lampanum, málaði mig bláan, setti Stravinsky á fóninn og las Strumpana afturábak meðan Ósk lék sér með glösin sín.

Gott að ná smá afslöppun.


Tjáskipti

baun

Ég komst í þjóðlegan baðstofufíling við þennan lestur og langar að þæfa brók.

Hugi

Gætirðu þæft fyrir mig rauða ullarbrók? Ég er nefnilega að safna skeggi og næ fljótlega ævilöngu markmiði mínu að verða æðstistrumpur. Já, æðstur allra strumpa, hvorki meira né minna. Ósk er hrifin af karlmönnum með völd.

Daníel

Og ekki hefur síminn truflað ykkur...

Hugi

Strumpar nota ekki síma.

Elin Bjork

serstakegla ekki ef their eru i ødru husi ?

Hugi

Húsi? Nei, nú ertu að bulla. Hér í Strumpalandi búa allir í sveppum.

Atli Páll Hafsteinsson

Þú veist að þú átt ekki að vera að narta í sveppina!

Ósk

Takk fyrir að nota ekki myndina þar sem ég ligg á bakinu og tungllampinn sést ekki, vandræðalegt. Svo bíð ég spent eftir rauðu brókinni, algjörlega sannfærð um það að líkja eftir æðstastrumpi sé refsivert athæfi.

baun

Kæra Ósk, þú færð rauðu brókina þegar ég er búin að þæfa alla ullina af kommúnistafénu sem ég finn í réttunum

Kristín Björg

Tek undir með Atla...............

Hugi

Kristín Björg þó! Ætlarðu þá ekki að borða sveppi með mér á árshátíðinni?

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin