Devon Schneider

9. nóvember 2008

Ég er ekkert smá ánægður með að Devon Schneider, maðurinn á bakvið stórmyndir eins og Gay Hollywood, Totally Gay! og Porno Valley, skuli vera fæddur sama dag og ég.

Þetta er svo lítill heimur, það fyllir mig gleði og hamingju og hungri eftir þekkingu og beikoni og spæleggjum.


Tjáskipti

Logi Helgu

Innilegar hamingjuóskir með daginn...í gær, vonandi finnst þér þú stærri í dag en í gær ;)

Einar Solheim

Innilegar hamingjuóskir. Vona að þú hafir átt einhverja betri vini en mig sem gerðu afmælisdaginn með einhverju móti eftirminnilegan.

Hugi

Jújú. Mældi mig í morgun og hæðin á mér núna er (Hugi + (Hugi * (1/29))). Mjög ánægjulegt að sjá hvað ég þroskast með rökréttum hætti. Einar, jú, takk þetta var sérstaklega eftirminnilegur afmælisdagur. Trúðar, fílar, loftfimleikafólk, 200 manna lúðrasveit. Alveg ljómandi.

Bjarni Þór

Fílar? Á Íslandi? Ertu ekki að meina fýlar? (sé reyndar ekki í fljótu bragði hvað fýlar ættu að gera í veislum annað en að æla yfir gestina).

Hugi

Fýlar geyma Flatey.

Sveinbjörn

En hann gerði ekki Gayniggers from Outer Space, sem er aðalmyndin: http://www.imdb.com/title/tt0274518/

Hugi

Úha, Sveinbjörn - þú segir nokkuð! Var ekki Gay Niggers From Outer Space til á Skynet hérna í gamla gamla daga?

baun

ja hérna. bara ammli? til hamingju með það!

Hugi

Takk :). Takk takk. Takk takk takk. Takk takk takk takk.Takk takk takk takk takk takk. Takk. Takka takkidítakk. Magnað orð, "takk". Og stórfurðulegt.

Sveinbjörn

Jú maður. Ég er viss um að Gay Niggers from Outer Space hafi komið í veg fyrir að Skynet tæki yfir heiminn. Meðvitundin hefur blossað í sekúndu, hún hefur parsað þessa kvikmynd, og ákveðið að meðvitund væri hreinlega ekki þess virði....

Sveinbjörn

Btw, það er ÓGEÐSLEGA pirrandi að þessi blessaði vefur þinn muni ekki eftir mér. Ég er alltaf að slá inn sömu helvítis upplýsingarnar. Er að nota Safari 4.0 Developer Preview.

Hugi

Úha, ég dró einmitt Skynet uppúr kjallaranum um daginn. Ætla að rannsaka á henni diskinn núna og tékka á því hvort það finnst ekki efni í gott menningarkvöld. Og ég lagaði Safari-cookie-bögginn hjá öllum nema þér. Þú ert svo sætur þegar þú ert pirraður :-).

Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin