Svona rétt vegna þess að Sveinbjörn kallaði mig siðspilltan alka, þá vildi ég bara koma því á framfæri að ég er alveg einstaklega grandvar og heiðarlegur og smakka varla áfengi. Fæ mér stundum sérríglas til að ylja mér á aðfangadagskvöld og er búinn að eiga sömu flöskuna í 3 ár.
Og á algjörlega óskyldum nótum vil ég nefna að ef einhver vill kaupa gögn úr ökutækjaskrá á niðursettu verði, þá verð ég á Ara í ögri til kl. 23:00 í kvöld. Ókeypis bjór og skot fylgir hverri kennitöluflettingu. Látið vini ykkar vita.
Sko, hlustið á Sigga, hann veit hvað hann segir! Heyrðu, alveg rétt, ég ætlaði að nefna þetta við þig með kallinn - lendum við ekki í skattinum ef ég legg þetta inn á bankareikning? Mér var að áskotnast fjandi gott kókaín, viltu ekki bara fá nokkur grömm í staðinn?
Skipti hér með tjá-i mínu hér.
Var einhver að minnast á kókain? Count me in!
Ekkert mál Sveinbjörn. En þú verður reyndar að sækja það sjálfur, það er innan í Eista á botni Norðfjarðarhafnar.
Ha?? Ég vil ekkert kókain sem hefur verið í eistum! ;)
Ég get ábyrgst Huga Þórðarson sem góðan og grandvaran dreng. Við Hugi höfum verið góðir vinir til margra ára og ekkert hef ég séð til hans á þeim tíma sem kastað gæti rýrð á mannorð hans. p.s. Hugi! Þú mannst þegar við spörkuðum í punginn á gamla manninum niðri í bæ um daginn og rændum svo veskinu hans. Þú ætlaðir að leggja inn á mig minn hluta af fengnum. Þú reddar því er það ekki?