Flokkar

Kjúklingur með chili í kókosmjólk

Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 7. júlí 2007.

Þessi var búin til úr því sem til var á heimilinu. Má bæta endalaust við - hugmyndir að endurbótum vel þegnar.

Innihald

  • Þrjár kjúklingabringur
  • Ein og hálf dós af kókosmjólk
  • 200g ferskir litlir maískólfar (má líka nota niðursoðna)
  • 1 rauður chili (eða eftir smekk)
  • 2msk engiferrót (rifin smátt)
  • Tandoori-krydd
  • 1 hvítlauksrif (smátt saxað)

Aðferð

  1. Brúnið kjúklinginn í tandoori-kryddinu.
  2. Hellið kóksmjólkinni yfir kjúklinginn
  3. Skerið maískólfana í hæfilega stóra bita og blandið saman við
  4. Saxið chili-aldinið smátt og blandið saman við
  5. Flysjið niður engiferrótina í litlar flögur
  6. Látið malla yfir hægum hita í ca. klst. eða þar til maísinn er orðinn eldaður.

Berið fram með hrísgrjónum, líka gott að hafa með Naan-brauð og Chutney.


Umsagnir

Engar umsagnir