Flokkar

Lambakjöt - marinerað

Hildur Þórðardóttir sendi þessa uppskrift inn 5. mars 2010.

Innihald

  • Lambakjötsbitar sem þér finnst bestir, u.þ.b.1 kg
  • Smjör til steikingar
  • Marinering:
  • 3 flöskur pilsner
  • 3 msk. sykur
  • 3 msk. edik
  • 1 laukur í sneiðum
  • 7 svört piparkorn
  • 7 kramin hvít piparkorn
  • 2 lárviðarlauf
  • 1-2 msk. einiber (má sleppa)

Aðferð

  1. Sýrunni blandað saman og kjötið sett út í
  2. Látið standa einn dag við stofuhita og 2-5 daga í kæli
  3. Snúið af og til
  4. Þurrkið kjötið með eldhúsrúllu fyrir steikingu
  5. Steikt á pönnu í smjöri og saltað
  6. 3 dl. af sýrunni hellt yfir, auk 2-3 dl. af vatni
  7. Látið krauma í 1,5 klst.

Umsagnir

Engar umsagnir