Flokkar

Grænmetisklattar

Hildur Þórðardóttir sendi þessa uppskrift inn 14. apríl 2010.

Innihald

  • 200 gr gulrætur
  • 200 gr kartöflur
  • 200 gr kúrbítur
  • 1 1/2 dl graslaukur
  • 4 1/2 msk brauðrasp
  • 1 egg
  • 1 tsk salt
  • 2 tsk svartur pipar
  • olía til steikingar

Aðferð

  1. Grófrífið gulrætur, kartöflur og kúrbít
  2. Blandið saman við rasp, smátt saxaðan graslauk og egg
  3. Kryddið með salti og pipar
  4. Mótið litla kökur úr deiginu og steikið í nokkrar mínútur á hvorri hlið

Gott að bera fram með kaldri hvítri sósu og salati
Hugmynd að sósu: sýrður rjómi, AB-mjólk, sinnep, sítrónusafi og kryddjurt/ir


Umsagnir

Engar umsagnir